Afreksíþróttasvið
Borgarholtsskóli býður upp á afreksíþróttasvið í knattspyrnu, körfuknattleik, handbolta, golfi, skíðum, íshokkí og listdansi á skautum. Nemendur á afreksíþróttasviði geta stundað nám á hvaða bóknámsbraut skólans sem er (félagsfræða-, mála-, náttúrufræði- eða viðskipta og hagfræðibraut).
Afreksíþróttasvið er fyrir nemendur sem vilja stunda sína íþrótt með álagi afreksmanna samhliða bóknámi. Áfanginn er fjórar námseiningar á önn.
Kröfur til nemenda:
• Að hafa stundað íþrótt sína í nokkur ár og vera virkur iðkandi í íþróttafélagi.
• Að hafa staðist grunnskólapróf.
• Vera vímuefnalaus íþróttamaður/íþróttakona.
• Geta tileinkað sér hugarfar og lífsstíl afreksíþrótta.
• Standast eðlilega námsframvindu og ljúka u.þ.b. 15-19 einingum á önn.
• Gerð er krafa að nemendur hafi a.m.k. 95% skólasókn í öllum námsgreinum.
Efnisgjald fyrir afreksíþróttasvið verður innheimt sérstaklega til viðbótar við önnur skólagjöld.
Frábær kennsluaðstaða:
Egilshöll - Íþróttahús Fjölnis
Korpúlfsstaðir - Básar
Umsókn:
Nemendur sækja rafrænt um skólavist á bóknámsbraut í gegnum vefinn menntagatt.is.
Einnig þarf að fylla út umsóknareyðublað fyrir afreksíþróttasvið og senda til skólans.
Allar nánari upplýsingar veitir
Bjarni Jóhannsson
Verkefnisstjóri afreksíþrótta BHS
Sími: 896 8566
bjarni@bhs.is



