05/09/2023 | Ritstjórn
Rausnarleg gjöf frá Innréttingum og tækjum
![Ársæll og Skarphéðinn taka við gjöfinni úr höndum Írisar og Philips](https://wp.borgo.is/wp-content/uploads/Afhendingin.jpeg)
Ársæll og Skarphéðinn taka við gjöfinni úr höndum Írisar og Philips
Á dögunum afhenti starfsfólk Innréttinga og tækja pípulagnadeild skólans höfðinglega gjöf. Þau komu færandi hendi með handlaugar, eldhúsvaska, innbyggð salerni og blöndunartæki frá Fima Therm. Tekið var á móti gjöfinni að Bæjarflöt 19 þar sem innréttuð hefur verið glæsileg aðstaða til kennslu í pípulögnum. Innréttingum og tækjum er þakkað innilega rausnarlega gjöf. Samstarf skólans við atvinnulífið er mjög mikils virði og er að mati skólastjórnenda lykill að menntun ungs fólks til starfa í iðnaði.
Íris Jensen og Philip Grétarsson frá Innréttingum og tækjum afhentu búnaðinn en Ársæll Guðmundsson, skólameistari, veitti honum viðtöku fyrir hönd skólans ásamt Skarphéðni Skarphéðinssyni, deildarstjóra pípulagnadeildar.
Myndagallerí
![Marín sviðstjóri iðn- og stafsnáms, Íris Rut, verkefnistjóri ferla og Magnea, fjármálastjóri](https://wp.borgo.is/wp-content/uploads/Marin-Iris-og-Magnea.jpeg)
Marín sviðstjóri iðn- og stafsnáms, Íris Rut, verkefnistjóri ferla og Magnea, fjármálastjóri
![Íris og Philip frá Innréttingum og tækjum](https://wp.borgo.is/wp-content/uploads/Verslunarfolk.jpeg)
Íris og Philip frá Innréttingum og tækjum
![Kennarar deildarinnar skoða innfelld blöndunartæki](https://wp.borgo.is/wp-content/uploads/Serfraedingar.jpeg)
Kennarar deildarinnar skoða innfelld blöndunartæki
![Skólameistari þakkar góðar gjafir](https://wp.borgo.is/wp-content/uploads/Raedan.jpeg)
Skólameistari þakkar góðar gjafir