19/03/2024 | Ritstjórn
Samfélagslöggur í heimsókn
Samfélagslöggur í heimsókn
Þriðjudaginn 19. mars komu Samfélagslöggur í heimsókn í Borgarholtsskóla. Þau ræddu við nemendur um allt milli himins og jarðar, útskýrðu verkefni og störf lögreglunnar ásamt því að svara spurningum nemenda. Markmið lögreglunnar með Samfélagslöggum er að færa lögregluna nær samfélaginu og styrkja tengsl lögreglunnar við ungt fólk.
Samfélagslöggur komu mjög vel fyrir og áttu gott spjall við nemendur skólans. Þeim er þakkað kærlega fyrir komuna í skólann.
Myndagallerí
Löggurnar ræddu við nemendur í matsalnum
Nemendur gátu sent inn nafnlausar spurningar
Löggur svara spurningum
Nemendur fengu að skoða búnað og tæki lögreglunnar