22/11/2023 | Ritstjórn
Sandkassagrafa í handavinnu málmiðna
![Nemendur við vinnu](https://wp.borgo.is/wp-content/uploads/nemendur-1-scaled.jpg)
Nemendur við vinnu
Nemendur í handavinnu málmiðna (HVM3A05) eru af ýmsum brautum málm- og véltæknisviðs skólans. Eitt af verkefnum þeirra í áfanganum er að smíða sandkassagröfu sem margir eiga æskuminningar af úr sandkössum leikskólanna.
Grafan er smíðuð úr ryðfríu stáli og undirstaðan er úr svörtu járni. Í þessu verkefni fengu nemendur tækifæri til að þjálfa ýmiss konar hæfni, svo sem í uppmerkingu, sögun, borun, rennismíði, skurði með slípirokk og TIG-suðu svo eitthvað sé nefnt. Þetta var fyrsti hópurinn sem spreytir sig á þessu verkefni en nemendur voru mjög sáttir við þá fjölbreyttu þjálfun sem af verkefninu hlaust.
Myndagallerí
![Önnur grafa](https://wp.borgo.is/wp-content/uploads/thumbnail_20231120_094157.jpg)
Önnur grafa
![](https://wp.borgo.is/wp-content/uploads/5959.jpg)