09/05/2023 | Ritstjórn
Verðlaun í rennismíði
Hákon Vignir ásamt Forseta Íslands, meistara sínum og fulltrúa Iðnaðarmannafélags Reykjavíkur (Mynd frá IMFR)
Nýsveinahátíð Iðnaðarmannafélags Reykjavíkur fór fram í febrúar síðastliðnum. Þar eru veitt silfur- og bronsverðlaun til nema sem þykja hafa skarað fram úr í sveinsprófi sínu. Nýsveinum, meisturum þeirra, fjölskyldu og vinum er boðið á hátíðina. Forseti Íslands, sem er jafnframt verndari hátíðarinnar, veitti 26 nýsveinum silfur- og bronsverðlaun. Var nýsveinum afhent viðurkenningarskjöl auk verðlaunapeninga og gjafa frá félaginu.
Einn nemandi frá Borgarholtsskóla hlaut verðlaun á hátíðinni. Það var Hákon Vignir Smárason sem fékk silfurverðlaun fyrir árangur í rennismíði. Hákoni er óskað kærlega til hamingju með verðlaunin.
Meðfylgjandi mynd er tekin við þetta tilefni og er fengin frá IMFR.