Líf í borgarholtsskóla

Raunfærnimat

Í haust fer fram raunfærnimat í Borgarholtsskóla. Raunfærnimat veitir staðfestingu á færni einstaklinga óháð því hvernig hennar hefur verið aflað. Niðurstöður raunfærnimats eru nýttar til að stytta nám eða sýna fram á og auka færni á vinnumarkaði.

Matið er ætlað þeim einstaklingum sem hafa náð 23 ára aldri og hafa þriggja ára starfsreynslu í viðkomandi fagi.

Boðið er upp á mat á móti námskrám allra verk- og starfsnámsbrauta skólans:

Sandra Hlín Guðmundisdóttir, náms- og starfsráðgjafi, veitir allar frekari upplýsingar. Best er að skrifa henni tölvupóst á sandra.gudmundsdottir@borgo.is eða hringja í síma 535 1700.

Næsta raunfærnimat fer fram haustið 2024. Smelltu hér til að sækja um.

Nánari upplýsingar um raunfærnimat er að finna á vef Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins.

Áætlaðar tímasetningar vegna raunfærnimats haustið 2024

  • Ágúst/september: Úrvinnsla umsókna, skimunarsamtöl
  • 14. – 17. október: Sjálfsmat
  • 15. – 17. nóvember: Raunfærnimat
  • 25. – 29. nóvember: Niðurstöður sendar þátttakendum

Uppfært: 14/06/2024

Sjá fréttir um Raunfærnimat